Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 4/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 4/2022

Fimmtudaginn 31. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. janúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2021, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. september 2019 og var umsóknin samþykkt 4. október 2019. Þann 19. nóvember 2021 var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram 22. nóvember 2021. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til sviptingar atvinnuleysisbóta. Kærandi boðaði forföll þann 21. nóvember 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda fyrir því að hafa ekki mætt í boðað viðtal þann 22. nóvember 2021. Skýringar bárust frá kæranda 14. desember 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2021, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. janúar 2022. Með bréfi, dags. 7. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. febrúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar er ekki að finna sérstakan rökstuðning fyrir kæru en af kærunni má ráða að kærandi sé ósáttur við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi þann 15. nóvember 2021 verið boðaður til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 17. nóvember 2021 klukkan 12.00. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða, án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans yrðu stöðvaðar. Ástæða þess að kærandi hafi verið boðaður til umrædds viðtals hafi verið sú að yfirfara og ræða atvinnuleit hans og óskastörf. Þá hafi jafnframt vaknað grunur um að kærandi væri staddur erlendis. Þann 16. nóvember 2021 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda. Kærandi hafi sagst vera veikur og því gæti hann ekki mætt til viðtals þann 17. nóvember. Tölvupósti kæranda hafi verið svarað af starfsmanni Vinnumálastofnunar sama dag, þann 16. nóvember, og hafi honum verið greint frá því að ef hann væri veikur þyrfti hann að afhenda stofnuninni læknisvottorð veikindum sínum til stuðnings. Þá hafi kæranda verið tjáð að hann yrði aftur bókaður til viðtals hjá Vinnumálastofnun bráðlega.

Þann 19. nóvember hafi kærandi verið boðaður til viðtals að nýju þann 22. nóvember klukkan 11.00. Áréttað hafi verið að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll þyrfti að boða, án ástæðulausrar tafar. Aftur hafi athygli kæranda verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur til hans yrðu stöðvaðar. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun tölvupóst þann 21. nóvember og greint frá því að hann gæti ekki mætt til viðtals þann 22. nóvember. Kærandi hafi sagst ekki geta komið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þar sem hann ætti ekki bíl. Með erindi, dags. 8. desember 2021, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðra viðtala þann 17. og 22. nóvember. Áréttað hafi verið að hafi atvinnuleitandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga. Jafnframt hafi verið óskað eftir því að kærandi framvísaði flugfarseðlum ef slíkt ætti við. Þann 14. desember 2021 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst. Kvaðst hann ekki hafa mætt til viðtals þann 22. nóvember þar sem hann hafi verið veikur. Kærandi hafi greint frá því að hann hefði verið verulega veikur í um tvær vikur en hann hefði ekki farið til læknis þar sem hann ætti ekki bíl og hafi liðið afar illa. Þá kvaðst kærandi ekki hafa verið erlendis. Með erindi, dags. 28. desember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 17. og 22. nóvember. Sú ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 4. janúar 2022. Í kæru til úrskurðarnefndarinnar veiti kærandi engar frekari skýringar á fjarveru sinni til boðaðra viðtala.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi: 

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Skulu ráðgjafar stofnunarinnar boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Eins og áður segi hafi kærandi verið boðaður til umræddra viðtala í þeim tilgangi að fara betur yfir atvinnuleit hans og óskastörf. Þá hafi jafnframt vaknað grunur um að hann væri erlendis.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt til viðtals þann 17. nóvember né þann 22. nóvember 2021. Í báðum tilfellum hafi kærandi boðað forföll sín og sagst vera veikur. Óskað hafi verið eftir læknisvottorði veikindum hans til stuðnings en kærandi kvaðst ekki hafa leitað til læknis vegna veikinda sinna. Skýringar kæranda hafi því ekki verið metnar gildar og á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð sem hafi fylgt frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í athugasemdum með 58. gr. sé jafnframt áréttað að mikilvægt sé að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fái greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar, hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi eða hvort viðkomandi uppfylli enn skilyrði laganna.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send.

Skýringar kæranda vegna fjarveru til umræddra viðtala snúi að því að hann hafi verið veikur. Með heimild í 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið óskað eftir því að kærandi skilaði inn læknisvottorði vegna veikinda sinna. Kærandi hafi aftur á móti ekki skilað læknisvottorði veikindum sínum til stuðnings. Með vísan til framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt til umræddra viðtala, án gildra skýringa, hafi kærandi þannig brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri honum því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þegar kærandi hafi verið beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 26,52 mánuði. Í samræmi við 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi réttur hans til atvinnuleysisbóta því verið felldur niður. Kærandi eigi ekki rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði, sbr. 31. gr. laganna.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli stofnunin jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti hún muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 22. nóvember 2021. Kærandi boðaði forföll og bar því við að hann væri ekki með bíl.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Þegar kærandi var beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 26,52 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2021, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum